Um síðuna

“Eins manns rusl er annars gull”

Ég er einn af þeim sem hendi engu og hirði allt. Ég á í fórum mínum allskonar pappíra og myndir sem hafa lengi legið í kössum og möppum og hef ég oft velt því fyrir mér hvað ég eigi að gera við þetta.

Fyrir marga væri lausnin eflaust að henda þessu eða gefa á safn, þar sem þetta fengi að liggja enn lengur í kössum og skúffum .

Mér finnst margt af þessu “gulli mínu” eiga skilið að fleiri geti skoðað þetta og vonandi haft gaman af.

Því var ekkert annað að gera en að kaupa skanna og hefjast handa við að skanna inn og setja upp vefsíðu til þess að deila þessu efni.

Þessi vefur er því hugsaður til að hýsa gamlar myndir og skjöl tengd Siglufirði.

Þessar myndir sýna og segja hluta af sögu Siglufjarðar frá árunum 1940 +/- til dagsins í dag.

Hér eiga eftir að koma myndir og skjöl tengd Gautunum, Karlakórnum Vísi, byggingasögu Siglufjarðar, gamla bryggjuliðinu og frystihúsi Þormóðs Ramma svo eitthvað sé nefnt.

Megnið af myndunum koma úr fórum ömmu Lóu og mömmu og pabba en hver tók þessar myndir , veit ég ekki en vonandi verður mér fyrirgefið fyrir að birta þær hér.

ggs

close-alt close collapse comment ellipsis expand gallery heart lock menu next pinned previous reply search share star