Á vormánuðum ársins 1997 bættust við tvö björgunarskip í flota Slysavarnarfélags Íslands.
Annað þeirra kom til Siglufjarðar og fékk við komuna nafnið Sigurvin, eftir bátnum sem að Gústi Guðsmaður átti, en hitt fór til Ísafjarðar og fékk nafnið Gunnar Friðriksson.
Skipin voru keypt frá Þýskalandi og voru smíðuð árið 1969.
Sigurvin var í umsjá Björgunarsveitarinnar Stráka til ársins 2006 og fór í ótal útköll og þjónustu leiðangra og reyndist mjög vel þau ár sem hann var á Siglufirði.
Þessar myndir eru teknar í maí árið 1997 þegar að áhafnir Sigurvins og Gunnars Friðrikssonar tóku formlega við skipunum og sigldu áleiðis af stað heim til Íslands.
Myndir frá komu Sigurvins til Siglufjarðar koma inn síðar.








Bs. Sigurvin – 2293
Smíðaár – 1969
Smíðastöð – Fr Schweers Bardenfleth
Skráð lengd – 17,57 m
Mesta lengd – 18,9 m
Breidd – 4,3 m
Dýpt – 2,18 m
Nettótonn – 11,0 t
Brúttótonn – 30,0 t
Brúttórúmlestir – 28,57
Vél- MTU, 6-1969
Hestöfl – 815,0
