Elliði SI 1 – Skjöl úr einum af fyrstu sölutúrum skipsins árið 1947

Nýsköpunartogarinn Elliði SI 1 var smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd í Selby á Englandi árið 1947 fyrir Bæjarútgerð Siglufjarðarkaupstaðar. Smíðanúmer 1325.

654 brl. 1.000 ha. 3 þennslu gufuvél. 54,00 x 9,11 x 4,55 m.

Elliði SI kom til heimahafnar sinnar hinn 19 október sama ár.

Togarinn fórst um 25 sjómílur norðvestur af Öndverðarnesi, 10 febrúar árið 1962.

2 skipverjar fórust en 26 var bjargað við illan leik um borð í togarann Júpíter RE 161.

Hér má sjá skjöl úr líklega annarri söluferð skipsins til Bretlands í desember 1947.

Leave a Reply

Discover more from Svona var á Sigló

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading

close-alt close collapse comment ellipsis expand gallery heart lock menu next pinned previous reply search share star